18.1.10

Sólin skín


Í dag skein Janúarsólin glatt, og það fer ekki á milli mála að daginn er farið að lengja. Allur snjórinn er farinn og það var 7 stiga hiti. Við þrjú fórum í göngutúr, og komum við í bakaríi á heimleiðinni. Hvað er hægt að biðja um betra.

17.1.10

Kaffisopinn

Þar sem ég sit hér og drekk morgunkaffið mitt hugsa ég um hvað fyrsti kaffisopi dagsins er alltaf góður, og gott að geta notið hans. Það er nefnilega þannig að ef ég er lasin hef ég aldrei lyst á kaffi, og það er alltaf merki um bata þegar mig langar í góðan kaffisopa.
Ég hef drukkið kaffi frá því ég var barn. Fyrst var það svolítið kaffi, sykur og mikil mjólk. Ég man vel að Eggi föðurbróðir minn kallaði kaffið mitt "kálfsskol."  Fullorðin hef ég alltaf drukkð það svart og sykurlaust.  Þessa dagana laga ég mér "filterkaffi" beint í bollann (könnuna, eða fantinn, eins og það hét fyrir vestan).  Ég nota gamla trekt og bút af eldhúsrúllu. Þetta er vegna þess að ég laga "alvöru" kaffi  bara  fyrir mig eina.  William vill heldur sterkt instant kaffi með glás af sykri.
Kaffi pásan er búin, það er farið að birta  og best að leggja í hann út með Tess.

15.1.10

Vetrargarður



Æ hvað garðurinn er vesældarlegur núna. En nú er spáð hláku og 8 stiga hita, svo það verður ekki langt þangað til vetrargosarnir fara að stinga upp kollinum.

14.1.10

Vetur í skóginum



Þetta er harðasti vetur sem komið hefur síðan ég kom hingað, fyrir 12 árum. Kannske ekki sá versti, því það var fyrsti veturinn minn hér, og það rigndi í sex mánuði samfleytt. Á efstu myndinni eru Tess og William í vetrarbúningi.

9.1.10

Hornið mitt


Stólinn minn, tölvan, teppið og Tess. Mikið höfm við það notalegt.

6.1.10

Vetrarveður

BBC News24 - sem  yfirleitt er haft í gangi á eldhússjónvarpstækinu - er helgað veðrinu í dag. Það er nefnilega snjókoma í Bretlandi og allt í volli. Flug- og lestarsamgöngur liggja niðri,  vegakerfið er lamað, skólar eu lokaðir og fólk er varað við að fara úr húsi nema líf liggi við.  Við hér höfum alveg solppið við þetta allt. Það er ágætis veður, hiti um frostmark og smá snjóföl.  Svolítið hált á gangstígum.  Húsbóndinn er samt svolítð fanatískur þegar frystir. Hann vefur rör og pípur með einangrunarplasti og opnar lúguna upp á háaloft til að ekki frjósi  í vatnstankinum sem þar er.  Bílinn vill hann helst ekki hreyfa. Við höldum okkur því heima, horfum (alltof) mikið á sjóvapið og dúllum okkur við tölvurnar okkar.

1.1.10

Gleðilegt ár!


Með von um að nýja árið færi ykkur öllum - og okkur hér líka - gleðistundir og góða heilsu. Þessar tvær myndir tók ég á nýársdag, sú efri sýnir snævi þakin fjöllin norðan við Clyde, en sú neðri er af tildru sem var að vappa í flæðarmálinu.



28.12.09

Ella leikur sér með jólagjafirnar


Jólasveinninn var örlátur og ég fékk að velja mér gjafir í uppáhalds búðinni, PC World. Sony T90 digital myndavél varð fyrir valinu, ásamt hugbúnaðarpakka, Paint Shop Pro X2 Photo. Gaman, gaman. Ég er búin að skipta um bakgrunn og setja ramma á þessa mynd af Tess.  Ég sé að það er líka hægt að lagfæra útlitið á fólki, taka burtu hrukkur, gera tennur hvítar og "thinify." Kannske ég geri tilraunir með sjálfsmynd næst!

25.12.09

Jóladagur 2009


24.12.09

Gleðileg jól!


Ég óska ættingjum og vinum gleðilegra jóla. Hér er frost og snjór og jólalegt um að litast. Myndin tekin í garðinum á aðfangadag.

23.12.09

Jólasnjórinn er kominn!


Það snjóaði í gær, og nú er frost. Svona leit þetta út í morgun.

22.12.09

Skipulag

Ég planlegg og geri lista, og fer eftir þeim. Þegar eitthvað stendur fyrir dyrum, eins og td. jólahald, ákveð ég strax í dyrjun desember hvað skuli gera, og hvernær. Ég klára að taka til, þrífa og skreyta daginn fyrir Þorláksmessu, og er löngu búin að viða að mér því sem þarf í jólamatinn. Ég veit ekkert verra en að vera með allt á síðustu stundu og þurfa að fara í búðir síðustu dagana fyrir jól.  Ég vil bara geta dútlað mér heima og slappað af. En þá spyr bóndinn: Hvað viltu fá í jólagjöf? Hann getur nefnilega ekki látið sér detta neitt í hug. Þetta er árvisst og gerist alltaf 1-2 dögum fyrir jólin. Þá þarf að leggja af stað í umferðaröngþveiti og jólaös - í dag bættist stórhríð við - til að fara með mig í búð til að velja mína eigin jólagjöf.  Stundum hef ég látið mér sárna þetta, en í dag fór ég í mína uppáhalds búð,  PC World og ég valdi mér flottar jólagjafir! Nú hlakka ég sko til jólanna!

19.12.09

Að baka eða ekki baka

Hér baka húsmæður ekki jólabakstur. Þær allra myndarlegustu baka kannske "mince pies", en flestar kaupa þær bara í stórmarkaðnum. Ég hætti að baka fyrir mörgu árum. því húsbóndinn vill miklu frekar versmiðjuframleitt kex. Það dúkkar samt alltaf eitthvað upp innra með mér,  eldgömul innræting, sem segir mér að það jafnist nú ekkert á við bökunarlykt í húsinu fyrir jólin.  Gömlu, góðu uppskriftirnar eru dregnar fram. Ég les þær af áhuga, og vel eina eða tvær til að baka. Oftast nær það ekki lengra. Þessa stundina er ég einmitt í þessu ankannarlega ástandi. Ætti ég að skreppa í búð og kaupa það sem vantar? Og baka? Eina sort? Tvær?  Piparkökur? Mömmukökur?  Eða bara kaupa kex?

18.12.09

Nú er ég nógu gömul til að kaupa rauðan hatt!

Warning
a poem by Jenny Joseph

When I am an old woman I shall wear purple
With a red hat which doesn't go, and doesn't suit me.
And I shall spend my pension on brandy and summer gloves
And satin sandals, and say we've no money for butter.
I shall sit down on the pavement when I'm tired
And gobble up samples in shops and press alarm bells
And run my stick along the public railings
And make up for the sobriety of my youth.

I shall go out in my slippers in the rain
And pick flowers in other people's gardens
And learn to spit.

You can wear terrible shirts and grow more fat
And eat three pounds of sausages at a go
Or only bread and pickle for a week
And hoard pens and pencils and beermats and things in boxes.

But now we must have clothes that keep us dry
And pay our rent and not swear in the street
And set a good example for the children.
We must have friends to dinner and read the papers.

But maybe I ought to practice a little now?
So people who know me are not too shocked and surprised
When suddenly I am old, and start to wear purple.

17.12.09

Jólatréð í stofu stendur


Ekki beint merkilegt. Það er skrýtið hvað mér finnst þetta gamla skraut fallegt þegar ég dreg það upp viku fyrir jól, en er svo rosalega leið á því og fegin að taka það niður á þrettándanum.  En þarna er það komið upp, gamla gerfitréð mitt, og þarna er löberinn sem tók mig fimm ár að sauma, loksins uppsettur. Blómvöndurinn er frá bóndanum, í tilefni afmælisins. Nú er maður orðin löggilt gamalmenni og á rétt á ellistyrk.

15.12.09

Kuldahrollur

Þegar kalt er úti, þá er líka kalt inni. Hérlendis eru hús illa eða ekki einöngruð. Þegar við keyptum þetta hús fyrir rúmum áratug þótti það nýtískulegt að hafa miðstöðvarkyndingu og tvöfalt gler, og fyrstu húsin í þessu hverfi, byggð ca 1970, höfðu hvorugt. 
William hafði aldrei upplifað miðstöðvarkyndingu - hann og foreldrar hans hýrðust í lokaðri og líklega alveg loftlausri stofu á kvöldin, kringum gashitara, og þegar kom að háttatíma var skriðið skjálfandi undir sæng með hitapoka.
Í þessu húsi er reyndar gasmiðstöð, en flestir ofnarnir eru agnarlitlir, og þar sem veggir eru ekki einangraðir þarf að kynda rosalega mikið til að halda á sér hita - og það er rándýrt.  Á veturna er ég alltaf vel dúðuð í ullarnærbol og flíspeysu, og ef ég er ekki að gera húsverk (sem eru góð til að halda á sér hita), sit ég yfirleitt vafin í teppi.  Við íslendingar vitum bara ekki hvað það er geysilegur lúksus að hafa hitaveitu.

14.12.09

Jóla "annir"

Nágrannakona mín bauð mér og nokkrum öðrum kellum í te á laugardaginn, og hjá henni var allt skreytt í hólf og gólf. Jólatréð meira að segja komið upp. Ég fékk smá jólasting, og í gær opnaði ég skrautkassann. Þegar fallegi jóla óróinn var tekinn upp kom í ljós að ein stjarnan var horfin, og þegar ég var búin að vefja jólaseríu listisamlega utanum standlampann í stofunni kviknaði bara á 75% af perunum. Illt í efni. En alltíeinu komust málin í lag, strarnan fannst í kassanum og húsbóndinn gat lagað seríuna.  Pabbi hefði kennt Svartnasa um þessa hrekki og amma hefði sagt að það væri snakkur að stríða mér. Nú ætla ég að koma mér í reglulegt jólaskap með því að þrífa eldhússkápana. Ómissandi jólaundirbúningur!

13.12.09

Vetrarþoka

Hér er hefur verið þoka í þrjá daga. Þetta er ekkert líkt þokunni sem stundum kemur heima á Íslandi á sumrin. Þessi þoka er ísköld og kælir mann innað beini. Hitastigið er um frostmark, en þegar það fer aðeins undir frostmarkið frýs þokan og allt verður þakið þykku hrími. Gras, trjágreinar, bílrúður.  Útivist er ekki eftirsóknarverð. Þetta er veður til að kvekja upp í arninum, sitja vafin í teppi og lesa góða bók - með sherryglas innan seilingar. En við erum ekki með arin og ég á ekkert sherry - og Tess þarf að fara út!

5.12.09

Ólukkans ekkisen ....

Þetta kvef vill bara ekki fara. Mánudagur: skárri. Þriðjudagur: hósti. Miðvikudagur, fimntudagur, föstudagur: hósti, hósti, hósti. Laugardagur: rolluhósti. Þetta tekur á þolinmæðina hjá manneskju sem aldrei hefur verið þekkti fyrir þolinmæði. En kvef er kvef, og verður að hafa sinn gang. 

2.12.09

Ókeypis trjáplöntur!


Við fórum í gróðrarstöð um daginn og rákumst á stamp með trjáplöntum. Þarna mátti taka sér tré, ókeypis, til að planta einhversstaðar þann 5. des. Við tókum eina plöntu. Þegar heim var komið fór Skotinn eiginmaður minn að hugsa. Þarna sá hann leið til að næla sér í eitthvað fyrir ekki neitt.  Fátt er betra en það.  Nú er semsagt búið að fara nokkrum sinnum aftur og nokkrar litlar plöntur bíða gróðursetningar þegar fer að vora. Við erum ekkert að spá í heimsmet. Bara ókeypis trjáplöntur í garðinn.