Að baka eða ekki baka
Hér baka húsmæður ekki jólabakstur. Þær allra myndarlegustu baka kannske "mince pies", en flestar kaupa þær bara í stórmarkaðnum. Ég hætti að baka fyrir mörgu árum. því húsbóndinn vill miklu frekar versmiðjuframleitt kex. Það dúkkar samt alltaf eitthvað upp innra með mér, eldgömul innræting, sem segir mér að það jafnist nú ekkert á við bökunarlykt í húsinu fyrir jólin. Gömlu, góðu uppskriftirnar eru dregnar fram. Ég les þær af áhuga, og vel eina eða tvær til að baka. Oftast nær það ekki lengra. Þessa stundina er ég einmitt í þessu ankannarlega ástandi. Ætti ég að skreppa í búð og kaupa það sem vantar? Og baka? Eina sort? Tvær? Piparkökur? Mömmukökur? Eða bara kaupa kex?

Engin ummæli:
Skrifa ummæli