Vetrarveður
BBC News24 - sem yfirleitt er haft í gangi á eldhússjónvarpstækinu - er helgað veðrinu í dag. Það er nefnilega snjókoma í Bretlandi og allt í volli. Flug- og lestarsamgöngur liggja niðri, vegakerfið er lamað, skólar eu lokaðir og fólk er varað við að fara úr húsi nema líf liggi við. Við hér höfum alveg solppið við þetta allt. Það er ágætis veður, hiti um frostmark og smá snjóföl. Svolítið hált á gangstígum. Húsbóndinn er samt svolítð fanatískur þegar frystir. Hann vefur rör og pípur með einangrunarplasti og opnar lúguna upp á háaloft til að ekki frjósi í vatnstankinum sem þar er. Bílinn vill hann helst ekki hreyfa. Við höldum okkur því heima, horfum (alltof) mikið á sjóvapið og dúllum okkur við tölvurnar okkar.

Engin ummæli:
Skrifa ummæli