5.4.10

Að sjóða egg

Það er sagt um lélega kokka að þeir kunni ekki einu sinni að sjóða egg. Ég er því lítill kokkur því ég get ómögulega soðið egg svo eiginmanninum líki. Rauðan á nefnilega að vera lin, en hvítan verður að vera vel hlaupin. Einn daginn sauð ég eggið í fjórar mínútur, og viti menn, fékk hól fyrir. Næst sauð ég því eggið líka í fjórar mínútur, en þá var það of harðsoðið. Líklega hefur það verið aðeins minna egg.  Ég sauð næsta egg í þrjár mínútur, en þá var það of linsoðið.  Hann tók það ráð að setja það í örbylgjuna en á nokkrum sekúndum varð það harðsoðið - og því óætt.  Sú sem mest græðir  er náttúrulega Tess, því hún fær að éta öll þessi mislukkuðu egg.

Engin ummæli: