11.4.10

Alltíeinu komið sumar

Það eru ekki nema nokkrir dagar síðan ég var dúðuð í úlpu og húfu og trefil utandyra, en í gær og í dag var 18 stiga hiti, og stuttbuxnaveður. Ég hef látið hendur standa fram úr ermum og er búin að vera að hreinsa beð og sá sumarblómum.  Húsbóndinn hjálpar stundum til ef þarf að grafa holu, en helst vill hann sitja inni við tölvuna sína. Hann hefur takmarkaðan áhuga á garðyrkju, nema hvað hann bjargar öllu sem ég ætla að henda og gróðursetur utangarðs.  Hann er nefnilega að rækta limgerði milli okkar og gangstígsins, svo það sé alveg öruggt að húsið sjáist ekki. Það fleygðu óknyttastrákar eggjum í húsið fyrir átta árum, og það gleymist seint.

Engin ummæli: