Ísland í fréttunum
Hvað er eiginlega að gerast heima? Ég orðlaus yfir þessu öllu. Ísland er stöðugt í fréttunum hér á BBC, aðallega vegna IceSave, sem fór á hausinn í gær. Vinafólk okkar átti þar peninga, sem þau fá vonandi bætta. Ég fylgist með Mogganum á netinu, og hlusta á fréttir á RÚV og hef áhyggjur af aurunum mínum, sem ég vann fyrir hörðum höndum og geymi hjá Landsbanka og Glitni. Þvílíkt og annað eins. Ná engin lög yfir þessa menn?

1 ummæli:
Innistæður ættu að vera tryggar, en hlutabréf lítils virði. En það sem er að gerast hér er sama og í flestum öðrum löndum, fjármálakerfi að rúlla. Burjaði í USA og virkar eins og Domino. Kveðja, Dísa
Skrifa ummæli