Loftnet
Frá barnæsku hefur húsbóndinn á heimilinu verið heillaður af fjarskiptum og öllu sem slíku viðkemur. Sérstaklega eru það loftnet, allt frá hversdagslegum sjónvarpsloftnetum uppí risastór möstur. Hann veit allt um þau sem hægt er að vita. Veðrið var gott í dag, svo familían fór í bíltúr, að skoða mastrið á Black Hill, en þaðan kemur sjónvarpið til okkar. Þið getið rétt ímyndað ykkur hvað þetta var spennandi fyrir okkur Tess. Hún var svo heppin að finna kanínuþef, en ég varð að láta mér nægja að taka mynd af herlegheitunum. Sem betur fer fundum við góða kaffistofu í nálægu þorpi, þar sem ég fékk kaffisopa og gómsæta gulrótarköku.

1 ummæli:
Þetta er bara með flottari möstrum sem ég hef séð - eða þannig... hahahahaha.
Bestu kveðjur frá Stralíu.
Anna Þura.
Skrifa ummæli