Hvítasunna
Þegar ég var lítil var þetta dagurinn sem ég fékk að fara í nýja sumarflík, jakka eða kjól, og fara út á skóm eftir langan stígvélavetur, því pollarnir á malargötunum á Ísafirði voru farnir að þorna upp. Stórir krakkar, og seinna ég sjálf, voru fermdir á hvítasunnudag, og dagurinn var alltaf sannkallaður hátíðisdagur.
Hér er engin hvítasunna. Skotar hafa nokkra "bank holidays" á ári, alltaf mánudaga, og enga af neinu tilefni. Það er einn í byrjun maí, líklega hefur hann einhverntíma verið 1.maí, og það er annar síðasta mánudag í maí, trúlega leifar af hvítasunnu. Ef ég ætti ekki dagatalið góða frá Bubbu og Samma myndi ég líklega ekki hafa hugmynd um að það er hvítasunnudagur í dag.
Skotar eru púrítanar miklir og húsbóndinn á heimilinu þekkir ekki hugtakið "að gera sér dagamun." Hann gengur í sömu fötunum alla daga og vill helst alltaf borða sama matinn, þ.e. annaðhvort "fish and chips" eða svínakjöt í einhverri mynd. Hann verður samt örugglega ánægður þegar hann fær hamborgarhrygg með öllu og jarðarber í eftirmat í dag, því ég held mínar hátíðir. Ég óska ykkur öllum gleðilegrar hvítasunnu!

Engin ummæli:
Skrifa ummæli