The Craigends Yew

Þetta forna tré, sem kallast víst ýr eða ýviður á íslensku, er 600 ára gamalt og er annað elsta sinnar tegunar hérlendis. Það er 30 metrar í þvermál, og meginstofninn er mælist 8.3 metrar að ummáli. Þegar það var græðlingur ríkti Robert III hér í Skotlandi og átti í sífelldum erjum við Henry IV Englandskóng. Plágan mikla geysaði á Íslandi í kjölfar mikils eldgoss. Þetta tré er nágranni okkar, stendur hér á árbakkanum bakvið garðinn. Það er alfriðað, en mér var sagt að byggingaverktakinn sem byggði húsin hér hafi laumast til að minnka það aðeins. http://www.ourlocalhistory.co.uk/yew.html

Engin ummæli:
Skrifa ummæli