Ellimörk
Þegar hrukkukremsbirgðir eru lágar gríp ég til sýnishorna sem stundum fylgja tímaritum, og sem ég safna og geymi í snyrtiborðsskúffunni minni. Í gærmorgun greip ég eitt af þessum sýnishornum, sem á stóð Age Defying, hugsaði "ekki veitir af," klippti af því hornið og bar kremið framan í mig. "Skrýtið krem," hugsaði ég. "Glært og grænleitt." Rýndi í smáa letrið (sem sísmækkar með árunum, og er nú eiginlega ólæsilegt á flestum pakkningum). Increases volume and thickness. "En ég vil ekki þykka húð! Jeremías, þetta er sjampó!"

2 ummæli:
Ef þú finnur eitthvað sem er í alvörunni Age Defying, láttu okkur hinar vita...við stelpurnar þurfum að standa saman, einkum og sér í lagi á degi eins og í dag!
Til hamingju með daginn, erekkiörugglega allir í einhverju bleiku?
Þú segir nokkuð. Kvennadagurinn 19 júní. Ég skelli mér í bleika bolinn og læt William sjá um kvöldmatinn!
Skrifa ummæli