Hér eigum við heima

Þetta er loftmynd af hverfinu okkar (frá Google Earth). Örin bendir á húsið okkar. Þetta er sumarmynd því trén eru öll laufguð. Á myndinni má sjá ána og graslendið handan við ána, sem við Tess göngum í kringum á hverjum morgni. Til að komast yfir ána göngum við upp með henni, gengum skóglendið og yfir litla brú, sem ekki sést á myndinni, en er efst í vinstra horninu. Það er önnur góð gönguleið lengra upp með ánni, gegnum gamalt skóglendi sem er geysi fallegt á vorin. Áður en trén laufgast er allt þakið í bláum og hvítum blómum.

2 ummæli:
Elsku Ella
Gaman að sjá að þú ert komin í bloggheima... Það færir þig eitthvað svo miklu nær manni :)
Hlakka til að lesa pistlana með morgunkaffinu.
Kv
Gaggenfrid von Hamar
Sæl frænka
Velkomin í bloggheima... hleypi svo mömmu og pabba reglulega í tölvuna þegar þau kíkja við :)
kv Elín
Skrifa ummæli