Af fuglum

Ef mögulegt er að vera meiri fuglavinur en ég er, þá hefur William vinninginn. Hann kaupir fóður í sekkjum og blandar vísindalega, og þegar hann birtist með fóðurskálina flykkist fiðurféð að úr öllum áttum. Heima voru það starrar, snjótittlingar og þrestir sem ég fóðraði, en hér eru aðrir fuglar. Svartþrestir, bókfinkur, gulltittlingar, blátittlingar, glóbrystingar og barrspætur. Sömuleiðis krákur, hringdúfur og síðast en ekki síst, venjulegar drulludúfur. Þær fara í taugarnar á mér, en William elskar alla fugla jafnt.

1 ummæli:
ji Willam myndi kannski bara byggja hús handa Starranum í garðinum :)En þetta er rétta viðhorfið, maður ætti að taka hann til fyrirmyndar
kv Elín Sam
Skrifa ummæli