17.12.09
15.12.09
Kuldahrollur
Þegar kalt er úti, þá er líka kalt inni. Hérlendis eru hús illa eða ekki einöngruð. Þegar við keyptum þetta hús fyrir rúmum áratug þótti það nýtískulegt að hafa miðstöðvarkyndingu og tvöfalt gler, og fyrstu húsin í þessu hverfi, byggð ca 1970, höfðu hvorugt.
William hafði aldrei upplifað miðstöðvarkyndingu - hann og foreldrar hans hýrðust í lokaðri og líklega alveg loftlausri stofu á kvöldin, kringum gashitara, og þegar kom að háttatíma var skriðið skjálfandi undir sæng með hitapoka.
Í þessu húsi er reyndar gasmiðstöð, en flestir ofnarnir eru agnarlitlir, og þar sem veggir eru ekki einangraðir þarf að kynda rosalega mikið til að halda á sér hita - og það er rándýrt. Á veturna er ég alltaf vel dúðuð í ullarnærbol og flíspeysu, og ef ég er ekki að gera húsverk (sem eru góð til að halda á sér hita), sit ég yfirleitt vafin í teppi. Við íslendingar vitum bara ekki hvað það er geysilegur lúksus að hafa hitaveitu.
14.12.09
Jóla "annir"
Nágrannakona mín bauð mér og nokkrum öðrum kellum í te á laugardaginn, og hjá henni var allt skreytt í hólf og gólf. Jólatréð meira að segja komið upp. Ég fékk smá jólasting, og í gær opnaði ég skrautkassann. Þegar fallegi jóla óróinn var tekinn upp kom í ljós að ein stjarnan var horfin, og þegar ég var búin að vefja jólaseríu listisamlega utanum standlampann í stofunni kviknaði bara á 75% af perunum. Illt í efni. En alltíeinu komust málin í lag, strarnan fannst í kassanum og húsbóndinn gat lagað seríuna. Pabbi hefði kennt Svartnasa um þessa hrekki og amma hefði sagt að það væri snakkur að stríða mér. Nú ætla ég að koma mér í reglulegt jólaskap með því að þrífa eldhússkápana. Ómissandi jólaundirbúningur!
13.12.09
Vetrarþoka
Hér er hefur verið þoka í þrjá daga. Þetta er ekkert líkt þokunni sem stundum kemur heima á Íslandi á sumrin. Þessi þoka er ísköld og kælir mann innað beini. Hitastigið er um frostmark, en þegar það fer aðeins undir frostmarkið frýs þokan og allt verður þakið þykku hrími. Gras, trjágreinar, bílrúður. Útivist er ekki eftirsóknarverð. Þetta er veður til að kvekja upp í arninum, sitja vafin í teppi og lesa góða bók - með sherryglas innan seilingar. En við erum ekki með arin og ég á ekkert sherry - og Tess þarf að fara út!
5.12.09
Ólukkans ekkisen ....
Þetta kvef vill bara ekki fara. Mánudagur: skárri. Þriðjudagur: hósti. Miðvikudagur, fimntudagur, föstudagur: hósti, hósti, hósti. Laugardagur: rolluhósti. Þetta tekur á þolinmæðina hjá manneskju sem aldrei hefur verið þekkti fyrir þolinmæði. En kvef er kvef, og verður að hafa sinn gang.
2.12.09
Ókeypis trjáplöntur!
29.11.09
18.11.09
Krókur
Við keyptum loftljós í IKEA um daginn og í gær ætlaði húsbóndinn að hengja það upp. Þá kom í ljós að það vantar krók í loftið. Hér eru nefnilega ekki krókar í dósinni fyrir loftljós eins og tíðkast á Norðurlöndum. Hér hangir bara rafmagnssnúra niður úr loftinu og á hana er settur skermur. Í dag er búið að fara í allar rafmagnsvöruverslanir hér í nágrannasveitunum, en enginn finnst krókurinn. Hann þarf nefnilega að vera sérhannaður til að hengja upp ljósakrónur. Ég er alveg viss um að þeir hjá IKEA vita þetta, og að það er örugglega stór hilla full af svona krókum í ljósadeildinni hjá þeim. Við vorum bara svo heimsk að fatta það ekki. Við sjáum þessvegna fram á aðra IKEA ferð á næstu dögum, sem mér finnst bara í góðu lagi, því þar fæst íslensk síld í krukkum, Kalles kaviar í túbu og kókosbollur.
14.11.09
Ránfugl á grein
8.11.09
Sunnudagsbíltúrinn
Remembrance Sunday
6.11.09
Haustdagar
Hér hefur rignt mikið undanfarið, og skógarstígurinn okkar Tess er bara leðja. Ég nota garðslönguna á vaðstígvélin og loppurnar, og Tess sættir sig vel við að vera þvegin um fæturna með ísköldu vatni þrisvar á dag. "Haustlitirnir" eru horfnir af trjánum, og laufin liggja í rotnandi haugum. Það er búið að seinka klukkunni, svo nú birtir fyrr á morgnana, og dimmir fyrr á kvöldin. Í búðunum er farið að bera á jólavarningi. Æ hvað tíminn líður fljótt.
22.10.09
"Responsible dog owner"
Nú skal fitja upp á prjónana
15.10.09
Klukkan 06:30
Tess? Það er nótt, það er alltof snemmt vakna.
UHH, YUHH, YUHH!
Það er nótt, Tess. Myrkur úti.
Tess kemur að rúmstokknum og dinglar rófunni ákaft utaní miðstöðvarofninn. Bang, bang, bang, bang.
Ég klóra henni vinalega bak við eyrun. Tess mín, það er alltof snemmt að vakna. Tess gengur um gólf, klær glamra á parketinu, ýlfrar - það er enginn svefnfriður lengur.
Nú er klukkan hálf átta, ég er klædd og komin á ról, kaffisopinn lagaður og Tess er búin að borða langþráðan morgunmatinn. Nú erum við að bíða eftir dagsbirtunni. Ég fer ekki út í myrkri, Tess!
14.10.09
Frumskógur
13.10.09
Outpatient
Fólki hélt áfram að fjölga, en fáir voru kallaðir inn að hitta doktorana. Skýring var gefin, eihver læknanna hafði ekki mætt og biðin eftir honum var orðin einn og hálfur tími. Sjúklingum eru skammtaðar 10 mínútur hverjum, svo það er ekki skrýtið þó margmenni væri þarna. Sem betur fer var minn læknir til staðar, svo ég þurfti ekki að bíða. Fékk mínar 10 mínútur og út. Það besta er að ég á ekki að koma aftur fyrr en eftir tvo mánuði. Húrra!
7.10.09
Úr daglega lífinu
Ég var með súrsætan kjúkling í kvöldmatinn, og hrísgrjón með. Eiginmaðurinn vill bara Uncle Ben's örbylgjugrjón, en ég sauð mér "boil-in-the-bag" hýðisgrjón (hollt og gott). Þegar grjónin voru soðin hellti ég af þeim og hengdi pokann á sleif þvert yfir pottinn í vaskinum, til að láta allan vökvann renna af. Ég snéri aðeins baki við til að sinna eldavélinni og þá kom húsbóndinn og ákvað að þvo sér um hendurnar í eldhúsvaskinum áður en hann settist að snæðingi. Potturinn með grjónapokanum var allt í einu orðinn fullur af vatni - og handsápu. Ég borðaði grjónalausan kjúkling í gærkvöld!









