18.11.09

Krókur

Við keyptum loftljós í IKEA um daginn og í gær ætlaði húsbóndinn að hengja það upp. Þá kom í ljós að það vantar krók í loftið.  Hér eru nefnilega ekki krókar í dósinni  fyrir loftljós eins og tíðkast á Norðurlöndum. Hér hangir bara rafmagnssnúra niður úr loftinu og á hana er settur skermur. Í dag er búið að fara í allar rafmagnsvöruverslanir hér í nágrannasveitunum, en enginn finnst krókurinn. Hann þarf nefnilega að vera sérhannaður til að hengja upp ljósakrónur. Ég er alveg viss um að þeir hjá IKEA vita þetta, og að það er örugglega stór hilla full af svona krókum í ljósadeildinni hjá þeim. Við vorum bara svo heimsk að fatta það ekki. Við sjáum þessvegna fram á aðra IKEA ferð á næstu dögum, sem mér finnst bara í góðu lagi, því þar fæst íslensk síld í krukkum, Kalles kaviar í túbu og kókosbollur.

1 ummæli:

housewife sagði...

Þær eru góðar, kókosbollurnar...