Hér er haldið uppá Remembrance Day þann 11. nóvember, eða næsta sunnudag á undan, og minnst fallinna hermanna. Tákn þessa dags er rauður valmúi. Við horfðum á áhrifamikil hátíðahöld í Royal Albert Hall í sjónvarpinu í gærkvöldi, og í morgun var bein útending frá stríðsminnisvarðanum í London. Drottningin (tv) og hennar fólk lagði fyrst blómsveiga, svo Gordon Brown og aðrir fyrirmenn og síðan marseruðu fleiri þúsund fyrrverandi og núverandi hermenn framhjá og lögðu sína sveiga við minnisvarðann. Þetta er allt geysilega hjartnæmt, og sérstaklega kemst ég við að sjá ekkjurnar. Margar þeirra eru mjög ungar. Hérlendis eru hermenn, sérstaklega fallnir, hafðir í miklum hávegum. Bretar eru gamlir stríðsmenn en átta sig ekki á því að breska heimsveldið er fyrir löngu liðið undir lok, og algjör óþarfi að vera að berjast í annarra manna löndum. Heimstyrjöldin var allt annað mál, því Hitler áformaði að leggja Bretland undir sig, en öll hin stríðin, Suez, Kórea, Falklandseyjar, Kosovo, Írak og Afganistan eru bara vitleysa.
Engin ummæli:
Skrifa ummæli