Netvenjur
Flestir hafa eflaust tileinkað sér fastar venjur í netheimum. Byrja á sömu síðunum og ferðast svo venjubundna leið um vefinn. Ég er afskaplega vanaföst og nýjar tölvur eru undantekingarlaust settar upp nákvæmlega eins og ég vil hafa þær - sem er næstum því alveg eins og fyrsta tölvan mín var uppsett - og morgunferðin mín um netið er sem hér segir:
Tékka og les póst. Skoða upphafssíðuna mína My Yahoo, sem er með tengla á fyrirsagnir Moggans, BBC News og Yahoo news, og veðurfar hér og heima á Íslandi. Les þær fréttir sem vekja áhuga (engar íþróttir, takk!). Næst liggur leiðin svo á facebook, til að kanna hvað vinir og ættingjar hafi verið að bralla. Svo skoða ég forsíður Daily Telegraph, Daily Mail og The Guardian og stundum líka ruv.is. Þegar þessu er öllu lokið rek ég gjarnan kapal á tölvunni, eða fer í svo sem einn orðaleik á king.com. Scrabble og Word Battle eru í miklu uppáhaldi, og ég tel sjálfri mér trú umað þetta sé heilaþjálfun til að koma í veg fyrir ellihrörnun.

Engin ummæli:
Skrifa ummæli