29.11.10

Innilokun

 Tess vill koma inn í hlýjuna. 


Nágrannarnir voru iðnir við snjóinn í gær. 

Það byrjaði a snjóa í fyrradag og það var hundslappadrífa megnið af deginum í gær. Nú er þykkur snjór yfir öllu, og ég þarafleiðandi "housebound." Ég veit ekki um neitt íslenskt orð yfir það fyrirbæri, enda held ég að það fyrirfinnist ekki vestfirskum genum. Íslendingurinn í mér þráir að fara út, bursta snjóinn af bílnum mínum og skella mér í skaflana, bara til að sýna þeim hér hvernig á að keyra í snjó.  En varasamur skoskur eiginmaður ræður ferðinni, bíl má ekki hreyfa í ófærð, alls ekki í snjókomu - og helst ekki í rigningu heldur. Við erum því ansi oft "housebound."

Engin ummæli: