Sveltikúr
Þetta er lengsti og strangasti megrunarkúr sem ég hef farið í um ævina, og hef ég reynt þá allmarga. Ég byrjaði 10. febrúar, fyrir meira en átta mánuðum, og hef ekki "svindlað" í eitt einasta skipti. Ég borða ekki sætindi, brauð, kökur, feitmeti, kartöflur eða pasta og hef ekki smakkað áfengi af neinu tagi, nema sherryglasið sem ég fékk mér þegar Gordon Brown sagði af sér. Þegar ég var yngri hefði ég snar lést á svona matarræði, en nú gengur þetta allt hægar. Samtals er ég samt laus við 25 kíló. Ég setti mér í upphafi að losa mig við 30 kg, svo það eru enn fimm eftir, og þau eru þrá. Það er samt engin uppgjöf í mér, aðalatriðið er að fitna nú ekki aftur.

Engin ummæli:
Skrifa ummæli