10.10.10

Skordýr

Þegar kólnar og dimmir reyna öll skordýrin í skóginum að finna sér smugur til að skríða í, og það er langt frá að húsið sé skordýrahelt.  Á morgnana er oft könguló í sturtubotninum eða í vaskinum á baðinu, sem þarf að veiða og fleygja út um gluggann, en þegar ég opna gluggann þá fljúga geitungar inn, oft margir, það er nefnilega stórt hreiður undir þakskegginu. 
Þegar ég kom niður í morgun og kveikti ljós í eldhúsinu hljóp sú stærsta og sprettharðasta kónguló sem ég hef séð yfir gólfið. Mér tókst að veiða hana í glas, opnaði bakyrnar og fleygði henni út - og inn flaug geitungur. Stór og feitur.  Oj bara. Nei, hvað sé ég - er ekki önnur könguló að hlaupa um gólfið - eða er helv. komið inn aftur?


Ekki beint frýnileg, þessi. 

Engin ummæli: