Tetris
Ég keypti fyrstu tölvuna fyrir einum 20 árum, notaða en í góðu lagi. Það var urmull af hugbúnaði á henni, og fullt af leikjum. Þar á meðal var Tetris. Ég var lengi forfallin Tetris spilari. Svo tóku aðrir svipaðir leikir við, ég man sérstaklega eftir Pango og Wallpipe. Þessa dagana spila ég Scrabble og Wordbattle á king.com. Þar get ég bæði spilað við sjálfa mig eða við aðra, sem er spennandi, sérstaklega þegar ég vinn. Ég skammast mín ekkert fyrir að eyða tímanum í tölvuleiki, ég er viss um að það er hin besta þjálfun fyri heilasellurnar.

Engin ummæli:
Skrifa ummæli