18.9.10

Nautahakkskássa

Húsbóndinn er maður íhaldssamur og vanafastur, og alls ekki gefinn fyrir nýungar í matarræði. Ég held mig innan ákveðinna marka í eldhúsinu, og elda nokkra vel testaða rétti til skiptis. Steikt nautahakk með lauk og gulrótum er alltaf vinsælt og er vikulega á borðum, og ég hef eldað það á nákvæmlega sama máta í tólf ár. Reynslan hefur kennt mér að það borgar sig ekki að gera neinar krydd tilraunir, eða bæta einhverju í þetta sem hann er ekki vanur. Ekki gera chili con carne eða spaghetti bolognese úr hakkinu, og ekki setja í það  papriku eða tómatsósu.  Bara lauk og gulrætur í bitum, bragðbæta með Oxo súputeningi og þykkja með Bisto sósudufti. Alltaf nákvæmlega eins.
Í gærdag þegar við vorum á göngu með Tess spurði bóndinn mig hvað væri í kvöldmatinn. Ég sagði það vera nautahakk. Hann brást glaður við, en sagði svo: Veistu hvað ég held að væri gott að hafa í hakkinu? Gulrætur. 

Engin ummæli: