Melasóley
Ég rakst á þessa plöntu í garðblómaverslun í vor, og keypti. Icelandic poppy, stendur á miðanum, eða Papaver Pacino. Fyrstu nóttina réðst á hana gráðugur snigill og át eitt blaðið (hún var pínulítil), svo ég tók hana í gjörgæslu og hún var inni á nóttunni þangað til hlýnaði í veðri. Síðan hef ég lyft henni upp á garðstól á hverju kvöldi.
Í morgun opnaðist fyrsta blómið. Við nánari athugun held ég að þetta sé ekki alveg nákvæmlega melasóley, því sú planta heitir Papaver Radicatum samkvæmt plöntubókum. En hún minnir mig nú samt á vindblásna íslenska mela og stelki og lóur, svo ég held mikið upp á hana.

Engin ummæli:
Skrifa ummæli