Megrunarkúr
Aukakílóin hafa háð mér alla ævi. Ég hef alltaf þjáðst af mikilli matarást og matarlyst, og þetta hefur farið úr böndunum, þrátt fyrir að ég eigi enga ósk einlægari en að vera í eðlilegum holdum. Þeir eru óteljandi, kúrarnir sem ég hef prófað. Ég hef fjárfest í öllum fáanlegum bókum, keypt kassettur til að hlusta á heilaþvott, gengið í Línuna, leitað til næringarfræðinga, og reynt alla hugsanlega kúra. Nokkrum sinnum hefur mér tekist að komast í "kjörþyngd," en miklu oftar hef ég bara uppskorið vonbrigði.
Síðan ég byrjaði, 10. febrúar, er ég búin að losna við 13 kíló. Þetta hefur verið rosaleg törn, ég hef ekki borðað neitt sætt eða feitt, engar kartöflur, grjón, pasta eða brauð og eins lítið af öðru eins og ég hef getað. Ég þarf að halda þessu áfram í nokkra mánuði í viðbót, en ég er farin finna mikinn mun. Stærstu fötin eru komin innst í skápinn og flíkur sem ekki hafa verið notaðar í nokkur ár eru farnar að passa á mig. Ég tek þetta í áföngum, og verðlauna mig þegar þeim er náð. Hálsmenið á myndinni (túrkis steinar og silfur) er 10 kílóa verðlaunin frá mér til mín. Ég er nýbúin að uppgötva The Dukan Diet, franskan kúr sem lofar góðu. http://www.dukandiet.co.uk/
Ég keypti bókina og las, og hef líka fylgst með líflegri umræðu á facebook. Ég er afskaplega vongóð um að þessi kúr eigi eftir að hjálpa mér, því höfundur hans, Dr. Dukan, skilur vel hvað það er sem veldur því sumu fólki gengur illa að hemja græðgina.


2 ummæli:
Frábært hjá þér. Kveðja, Dísa
Heilsan fyrir öllu, ekki satt. Heilbrigð sál í hrausum líkama og allt það. Sá þátt á Opruh um daginn þar sem var talað um matarkúra og svoleiðis, áhugavert fannst mér. Þekkti meira að segja einn viðmælandann (alexandria marcus) sem var í góðum holdum síðast þegar ég hitti hana sumarið 2008. Nú sjúklegt babe. Sjá hér: http://www.oprah.com/oprahshow/Geneen-Roth-Talks-About-Women-Food-and-God
Allt er hægt, en mér skilst að orðið megrun sé hættulegt. Eða að minnsta kosti leiðinlegt. Betra að temja sér hollari lífshætti. Virkaði amk fyrir mig :)
xxx Gagga
Skrifa ummæli