24.9.09

Persónunjósnir

Ég eyddi smátíma á heimasíðu Marks & Spencer á dögunum, og leist nokkuð vel á tvær peysur og slopp, sem ég klikkaði á til að skoða nánar. Ég geri þetta stundum, og ef ég sé eitthvað spennandi fer ég kannske í búðina til að máta. Nokkrum dögum seinna var ég á allt annarri vefsíðu, og þá birtist alltíeinu auglýsing frá Marks og Spencer: Myndir af akkúrat þessum þremur flíkum. Síðan hefur þetta gerst nokkrum sinnum, ég er einhversstaðar á netinu, að spila Scrabble eða lesa fréttir - og peysurnar og sloppurinn birtast! Það er eins og það sé fylgst með manni!

Engin ummæli: