Haustdagar
Haustið var einusinni í miklu uppáhaldi hjá mér. Það var þegar haustið boðaði nýtt skólaár eða ný og spennandi námskeið. Nýjar bækur, stílabækur og óskrifuð blöð. Nú til dags er ég ekki hrifin af hasutinu. Haustlitir, sem margir dásama, finnst mér ljótir. Gulnuð lauf, deyjandi gróður og vetur í nánd. Í ár er haustið mér erfiðara en oft áður, því henni Tess minni hefur hrakað og óvíst hvað við fáum að hafa hana lengi hjá okkur. Það eru dapurlegir tímar framundan.

Engin ummæli:
Skrifa ummæli