
Sjaldgæfur gestur lét sjá sig í gær - sólin. Krókusarnir hristu af sér vætuna og brostu breitt, og það sama gerði ég. Ég átti "góða" stund við illgresisreitingu í garðinum, og leit björtum augum til frekari afreka á því sviði. En í dag er aftur komin rigning. Ég hugga mig við það er enn bara mars, og nógur tími framundan til að klára vorverkin.
Engin ummæli:
Skrifa ummæli