Fréttaskortur
Ef einhver hefur kíkt hér inn nýlega, þá biðst ég afsökunar á því hvað ég blogga lítið þessa dagana. Ástæðan er einföld, það gerist bókstaflega ekki neitt. Veðrið er leiðinlegt, og ekki hægt að byrja í garðinum, þar sem illgresið er byrjað að vaxa af miklum krafti, og það er heldur ekki neitt gaman að fara í bíltúr eða dagsferðir með myndavélina, því það er allt grátt. En bráðum kemur betri tíð, og blóm, og þá get ég farið að smella af.

Engin ummæli:
Skrifa ummæli