21.3.08

Heillaskeyti

Þetta fann ég á botninum á gamla kistlinum mínum. Ég hef eflaust séð það áður, þó ég muni ekki eftir því. Heillaskeyti til mömmu, Sjúkrahúsinu Ísafirði. Sent 24.12 1942, frá fjölskyldu hennar í Búð í Hnífsdal. Gleðileg jól og til lukku með dótturina. Ég var þá vikugömul.

2 ummæli:

housewife sagði...

Engin smá verðmæti sem þú finnur á kistilbotni. Og fallegt skeyti. Sómir sér vel á hvaða vegg sem er.

Elin sagði...

Góð hugmynd! Ég þarf að finna viðeigandi ramma.
Ella.