24.8.06

Tess er farin að blogga

Ég setti "sitemeter" á síðuna hennar Tess, og sé að þó við fáum nokkra tugi gesta daglega staldra fáir lengi við, svo ég ákvað að vera dugleg að setja nýtt efni á vefinn. Það nýjasta er Dogblog, þar sem Tess afhjúpar sínar skoðanir á hundalífi og tilveru.

Hljóðfærið

William gaf mér hljómborð fyrir tæpum tveimur árum, sem ég glamra stundum á að gamni mínu, af lítilli snilld. Ég get spilað eftir eyranu, en bara í C-dúr. Nú ætla ég að fara að læra almennilega, og er búin að semja við ungan mann, Stuart, um að koma vikulega og kenna mér. Við byrjum á laugardaginn. Hann veit að ég er "gamalmenni" - en kannske fær hann sjokk þegar hann sér að hljóðfærið mitt er ekki Yamaha eða Casio, heldur frá Bontempi, sem er leikfangaframleiðandi.

13.8.06

Sólblóm


Ég sáði nokkrum sólblómafræjum í vor og nú eru þau orðin tveggja metra há og farin að springa út.

8.8.06

Hundadagar



Kim var hjá okkur í nokkra daga. Kim er hundur vinafólks okkar, Barböru og Toms og við höfum passað hana áður. Hún er gömul, 11 ára, og vandamálið er að það er alveg voðalega vond lykt af henni. Tess hreinlega ilmar í samanburði við Kim, en kannske erum við samdauna lyktinni af eigin hundi. Nú er Kim farin, og dagurinn hefur farið í að lofta út og þrífa.

31.7.06

Álfamær

Þessi stytta er í miklu uppáhaldi hjá mér, og ég planta alltaf einhverju fallegu í kringum hana.
Blómlegt.

Lavatera

Bleika plantan við húshornið heitir Lavatera, og vex mjög vel hjá okkur. Nágrannakona gaf mér afleggjara fyrsta sumarið okkar hér, og nú á ég líklega einar 20 lavaterur í garðinum, sem ég endurnýja reglulega, því þær eru ekki mjög langlífar. Þessi er við hliðina á ruslatunnunni.

Fiðrildi

Við Tess rákumst á þetta geysi skrautlega fiðrildi í morgun. Tess er brussa og kann ekki að meta smávinina fögru svo hún var næstum búin að stíga á það, en mér tókst að bjarga - og taka mynd með símanum mínum áður en það flaug burtu.




28.7.06

Mér er heitt!

Þegar heitast var um miðjan daginn í gær fann þessi svartþröstur sér svalan stað í garðinum, ýfði fiðrið og andaði með opnum goggi, eins og hann væri að gefa upp öndina. Það var aðeins svalara í dag, sólarlaust og smá rigning. Það eru eiginlega allir fegnir.

27.7.06

Sól, sól og meiri sól.

Aldrei hefði ég trúað því að ég ætti eftir að verða leið á blessuðu sólskininu. Það hefur verið sól og blíða hér allan júlí, og hluta af júní. Hitinn 25 stig eða meira í skugga um miðjan daginn. Vandamálið er að íslendingurinn í mér er vanur því að þegar sólin skín er málið að láta allt annað bíða og njóta góða veðursins. Ekki eyða tímanum í húsverk eða búðaráp eða neitt sem hægt er að gera þegar veðrið er grátt. Ég hef því eytt megninu af júlímánuði útflött í sólstól úti í garði, reyndar í skugganum, því ekki vill maður brenna sig til óbóta. Ég les, og dotta eða sit með myndavélina tilbúna á þrífæti til að taka myndir af fuglunum. Nú er samviskan farin að láta á sér kræla, þvílík leti. Vonandi fer bráðum að rigna .

24.7.06

Fuglabað


Við keyptum fuglabað fyrir nokkrum árum, aðallega til skrauts í garðinn. Það kom samt fljótlega í ljós að þetta var ómissandi fyrir fuglana. Vatn að drekka og til að busla í. Við höldum því ófrosnu á veturna, og fyllum það upp daglega á sumrin.

17.7.06

Froskur


Þessi litli froskur sat á stéttini þegar við komum heim úr síðdegisgöngunni í dag. Hann var í sólbaði, teygði úr skönkunum og lygndi augunum, og stillti sér upp fyrir myndatöku. Myndavélin var sótt, en um leið og hann sá hana stökk hann í burtu. Ég hef sannreynt að silfurlit myndavél er ekki góð til að taka dýralífsmyndir. Það eru allar villtar skepnur hræddar við hana.

12.7.06

Stóra tréð

Þegar við völdum húsið okkar var ég sérstaklega hrifin af geysi stóru og fallegu tré sem stendur á lóðinni. Þetta er "horse chestnut" - líklega nokkurra alda gamalt, og á vorin þegar það er í fullum skrúða er það þakið hvítum blómum. Seinna koma svo hneturnar, sem reyndar eru ekki ætar nema fyrir íkornana, sem safna þeim og fela til vetrarforða.
Nú horfir illa fyrir trénu. Það er veikt, engin blóm eða hnetur, og laufið hrynur af því. Við fengum sérfræðing til að líta á það, og hann sagði okkur að skæð víruspest herjaði á þessa trjátegund, svo nú verðum við líklega að láta saga það niður. Það verður tómlegt þegar það fer, en fátt er svo með öllu illt, því garðurinn verður sólríkari á eftir.

Svona lítur tréð út núna, hálfnakið.

10.7.06

Berjaferð

Hásumar og berin orðin rauð. Við heimsóttum PYO farm (pick-your-own) sem er hér í nágrenninu eftir hádegi í dag og tíndum jarðarber og hindber. Namminamm.

7.7.06

Glencoe

Það var farið í ferðalag í dag. Vaknað snemma og tekið til nesti, myndavél og vegakort og stefnan tekin á Glencoe, sem er frægur bardagastaður í Skotlandssögunni, en líka orðlagður fyrir náttúrufegurð. William er ekki morgunhani, og er yfirleitt ekki í sambandi fyrr en um hádegi, enda kom í ljós á áfangastað að hann hafði tekið tveggjakílóa sekk af fuglafóðri með, því pokinn hafði verið á eldhúsborðinu við hliðina á nestistöskunni. Ferðin tók rúman klukkutíma, við vorum komin á leiðarenda klukkan eitt, og fundum yndislegan stað á árbakka til að borða nestið. Svo skoðuðum við okkur um, fengum okkur kaffi í litlu veitingahúsi og héldum svo af stað heim. Að venju villtumst við, því William hefur "tunnel vision" og sér ekki vegaskilti. Ég sat hálfsofandi með kortið á hnjánum, og hafði orð á því að það væri skrítið að skiltin nefndu ekki Glasgow, heldur Callander og Perth og svo fórum við í gegnum hin og þessi þorp og landslag sem ég mundi alls ekki eftir á leiðinni uppeftir. Þegar við áttuðum okkur vorum við komin langleiðina til Perth. Ferðin heim tók því tvisvar sinnum lengri tíma en til stóð. En við erum komin heim, heilu og höldnu og útþránni svalað í bili.

6.7.06

Fuglsungi


Bluetit (blátittlingur?) ný floginn úr hreiðrinu og geysi duglegur að borða.

2.7.06

Sumardagar

Veðrið hefur leikið við okkur undanfarið, og ég hef notið blíðunnar í garðinum. Aðal viðfangsefnið þessa dagana er að taka myndir af dýra- og fuglalífinu, sem er fjölbreytt. Smáfuglarnir koma með ungahópa til að kenna þeim að borða fóðrið sem við setjum út, og ýmis önnur dýr eru daglegir gestir. Rebbi kemur oft í heimsókn, sömuleiðis íkornar, broddgeltir og skógarmýs.

29.6.06

Lágfóta í heimsókn

Þessar myndir voru teknar fyrir hálftíma síðan útum eldhúsgluggann.
Rebbi er að tékka hvort einhverjir molar hafi dottið af fuglaborðinu.


Hann horfir löngunaraugum á fuglamatinn. Það er freistandi að luma einhverju að honum, en ekki mjög skynsamlegt.

27.6.06

Ófreskjur

Þessar ófrýnilegur skepnur myndaði ég á veggnum við bakdyrnar. Ég veit ekki nein deili á þeirri efri, en sú neðri er eihverskonar fiðrildi, hún var risastór, ca 5cm í þvermál. Það er trúlega útiljósið sem heillar, en mér þykja þessir gestir allt annað en heillandi!

24.6.06

Pillur


Ég fann fjögur tölublöð af Pillum í Biblíunni hans pabba. Þetta fyrsta eintak er útgefið á Ísafirði í janúar 1923, og tel ég líklegt að pabbi hafi komið við sögu. Þetta hefur verið þegar hann vann sem prentari. Annað blað og þekktara, Hrappur, kom líka út á þessum árum. Aðaltilgangur ritsmíðanna er að gera grín að bæjarbúum, og þá helst þeim þekktastir eru.
Hér er skönnuð útgáfa af blaðinu.
Bls. 1 og 4

Bls. 2 og 3

Garðurinn á Jónsmessu


Þessi planta heitir tropolaeum speciosum - eða flame flower- og hún vex
upp eftir trénu eins og jólaskraut.

William vökvar frumskóginn.