21.3.10

Vorið komið!

Í gær var jafndægri á vori, og það telst vera fyrsti dagur vorsins hérlendis. Veðrið var skikkanlegt í dag, svo ég for út í garð og hreinsaði til í "vorbeðinu" mínu. Ég sé það út um eldhúsglugann, svo ég byrja alltaf á því fyrst. Það var gott fyrir sálartetrið að róta pínulítið í mold og hlúa að fyrstu sprotunum. 

Engin ummæli: