7.2.10

Leshópurinn

Leshópurinn verður 10 ára í júní. Ég sé mikinn mun á okkur; við  vorum  yngri og betur á okkur komin  árið 2000, en alltaf jafn ung í anda. Frá vinstri: Eileen (fv. skólastjóri í barnaskóla), Eric (fv. sóknarprestur), Janice (fv. félagsráðgjafi), Joy (ný komin í hópinn, fv. bókavörður),  John (vann við fiskirannsóknir),  Irene (fv barnakennari),  Shirley (húsmóðir),  Marion (húsmóðir og listakona) og Barbara (fv. barnakennari). Á myndina vantar Barry (fv. sölustjóri), Judith (fv. Avonlady) og Diane (húsmóðir) og svo vantar náttúrulega mig, sem tók myndina.. Nokkrar hafa helst úr lestinni á þessum árum, Freda og Muriel eru látnar, Mary og Maureen fluttu í burtu og Gillian hafði of mörgu að sinna því hún er enn að vinna.  Myndin var tekin heima hjá Eileen, og bókin sem var til umfjöllunar var The Girl With the Dragon Tattoo, sem hlaut ekki góða dóma.

Engin ummæli: