Skógardúfa
Stór fugl, stærri og þunglamalegri en venjuleg dúfa. Sést oft á matseðlum á fínum veitingahúsum. Skógardúfur eru algengar hér um slóðir, og tvær þeirra hafa nú tekið sér bólfestu í tré í garðinum, gegnt eldhúsglugganum mínum. Þær eru búnar að gera sér hreiður og líklega eru komin egg. Ég hef oft haft orð á því að gaman væri ef einhverjir smáfuglar gerðu sér hreiður í þessu tré okkar, en þessar hlussur! Þær eru eins og júmbó þotur og þegar þær lenda á trénu hristist það allt og skekst. Ég hef ekki reynt að taka mynd af parinu, því ég vil ekki trufla þau.


1 ummæli:
Gættu vel hvers þú óskar þér. Það gæti ræst, en ekki eins og þú vilt.
Skrifa ummæli