24.8.06

Hljóðfærið

William gaf mér hljómborð fyrir tæpum tveimur árum, sem ég glamra stundum á að gamni mínu, af lítilli snilld. Ég get spilað eftir eyranu, en bara í C-dúr. Nú ætla ég að fara að læra almennilega, og er búin að semja við ungan mann, Stuart, um að koma vikulega og kenna mér. Við byrjum á laugardaginn. Hann veit að ég er "gamalmenni" - en kannske fær hann sjokk þegar hann sér að hljóðfærið mitt er ekki Yamaha eða Casio, heldur frá Bontempi, sem er leikfangaframleiðandi.

2 ummæli:

housewife sagði...

Og svo er bara að skrá sig í Rock Star Supernova - er það ekki lógískt næsta skref?

Hidden musical talent í familíunni, það er sem ég segi :)

Nafnlaus sagði...

glæsilegt frænka, mér líst vel á þig :)