Loff malakoff og Ella gamla lifir enn ...

Árleg læknisskoðun og myndataka fóru fram 3. apríl sl., og síðan hef ég verið á nálum að bíða eftir niðurstöðum vegna röntgenmyndanna. Þessa löngu bið kenndi starfsfólk spítalans tölvum (alltaf gott að geta kennt þeim um), en ég held að ég hafi hreinlega týnst í kerfinu. Í dag fékk ég svo loksins að vita að allt virðist í fínu lagi. Halelúja fyrir því.

1 ummæli:
Til hamingju með það frænka, frábært að heyra :)
Skrifa ummæli