23.7.08
15.7.08
5.7.08
Engin mynd
Ég geng niður með ánni hér svo til daglega. Tess veit ekkert skemmtilegra en að snuðra um í gróðrinum og busla í ánni. Öðrumegin árinnar er flatlendi, hinn bakkinn er brattari og þar vex hávaxinn gróður og sef og þar heldur sig gjarnan myndarlegur gráhegri. Ég hef oft reynt að ná mynd af þessum fugli, en það er ekki einfalt. Gamla myndavélin hafði ekki nógu góðan aðdrátt, en síðan ég fékk þá nýju hef ég gert margar tilraunir til að taka mynd af hegranum, en þegar myndavélin er höfð með i morgungönguna, þá sést enginn fugl. Þegar ég er myndavélarlaus, þá stillir hann sér upp í sefinu, reigir hálsinn og stendur grafkyrr.
Í morgun fórum við Tess snemma, tvær einar. Hegrinn myndi örugglega vera á árbakkanum að veiða sér í morgunmatinn. En það sást enginn fugl. Tess óð út í ána, og fiskur spratt uppúr vatninu fyrir framan hana. Hún var alveg forviða og reyndi að elta hann. Auðvitað gerðist það of hratt fyrir mig og mína myndavél! Ætli það sé ekki skynsamlegast fyrir mig að taka bara myndir af blómum.
24.6.08
Uppáhaldsfugl
Þetta er spæta, eða "great spotted woodpecker." Þetta er sjaldgæfur og styggur fugl, en hneturnar eru ómótstæðilegar og hann hefur gogginn til að ná þeim. Ég tók þessa mynd út um gluggann í morgun. Því miður flaug einn svona fugl á rúðu hjá okkur í síðustu viku, og dó. Þeir fljúga geysihratt, og hann hefur líklega blindast af sól. Það var mikið áfall.
20.6.08
Ég er svartþröstur
15.6.08
Litaval
Það er eins og garðurinn viti hvaða litir passa best saman. Fyrst í vor var allt í gulu, svo tóku bláklukkurnar við, en nú er það hvítt og fjólublátt. Allt í stíl. Þetta er ekki verk garðyrkjusnillings, heldur bara óvart. Hér var plantað samansafni af afgöngum úr öðrum beðum, gjöfum frá nágrönnum og vinum og slatta af plöntum úr gróðrarstöðinni, að ógleymdum "foxgloves" - sem vaxa villtir hér um allt.1.6.08
27.5.08
27. maí, 1978.
23.5.08
19.5.08
Myndavélin
Það hvíla þau álög á nýju super zoom myndavélinni minni að ef ég plús vélin birtast, þá hverfa allir fuglar. Ef ég tek vélina með í ferðalag til að taka landslagsmyndir, þá fer að rigna. Í gær tók ég myndavélina með í morgungönguna í glaðasólskini, en sá ekkert markverðara til að mynda en hunda. Í morgun tók ég vélina ekki með í morgungönguna niður með ánni, og þar stóð geysimyndarlegur hegri á árbakkanum, önd synti um með ungahóp, og kingfisher, sem er glæsilegastur breskra fugla, flaug glitrandi blár og appelsínugulur upp með bakkanum og stillti sér upp á grein. Er þetta einleikið?
Meðfylgjandi mynd er ekki tekin af mér.
15.5.08
Þjófar og ræningjar
Einhverjir óprúttnir náungar hafa lifað hátt á Spáni á minn kostnað - eða réttara sagt á kostnað bankans sem gaf út kreditkortið mitt. Það var hringt í mig í gær og mér sagt að vafasamar úttektir hefðu átt sér stað, og þeir væru búnir að loka kortinu. Þetta voru samtals 521 pund sem verslað var fyrir, og svo var reynt að taka út 15o til viðbótar eftir að lokað var fyrir. Þetta er í annað sinn sem þetta gerist. Ég hef aðallega notað þetta kort á netinu, og hef sem betur fer vit á að hafa lágmarks þak á úttektum, 500 pund. Þrátt fyrir að ég hafi engu tapað persónulega, þá finnst mér andstyggilegt að vita af einhverjum gangsterum notandi mitt nafn og númer. Ekki veit ég hvað þeir keyptu, en það hefur eflaust verið einhver ósómi.
10.5.08
9.5.08
Ránfuglar
Við fórum til Aberfoyle á þriðjudaginn og þar eru ránfuglar í búri fyrir túristana til að taka myndir af. Þeir eru bundnir við staura. Mikið vorkenndi ég þeim. Þetta er fálki, held ég.
Örn.
Eagle Owl. Stærsta uglan í Evrópu.
Þetta er nítján-daga gamall ugluungi sem þarna var til sýnis.







