23.7.08

Nú er sumar . . . o.s.frv


Það er 22 stiga hiti og glaðasólskin í dag.


Eldhúsdyrnar. Við keyptum lítið borð og tvo stóla í vor sem við notum mikið.

Eldri hluti garðsins. Hér þarf að fara að "trimma" aðeins.
Gróðurinn er orðinn of hávaxinn.

"Nýji garðurinn". Hér vantar ekki litina.

Ég sáði blómafræjum kringum gamla trjástofninn.

Lavatera. Uppáhalds plantan okkar.

Þetta kallaðist "hortensía" í gamla daga á Ísafirði, og var stofublóm. Hér heitir þetta "hydrangea" og vex vel utandyra.

15.7.08

Sumarkvef

Hósti, hnerrar og stöðugar snýtur. Hausverkur og kverkaskítur. Ekki bara ég, heldur við bæði. Fórum samt í göngutúr í gær, ég tók nokkrar myndir.

5.7.08

Engin mynd

Ég geng niður með ánni hér svo til daglega. Tess veit ekkert skemmtilegra en að snuðra um í gróðrinum og busla í ánni. Öðrumegin árinnar er flatlendi, hinn bakkinn er brattari og þar vex hávaxinn gróður og sef og þar heldur sig gjarnan myndarlegur gráhegri. Ég hef oft reynt að ná mynd af þessum fugli, en það er ekki einfalt. Gamla myndavélin hafði ekki nógu góðan aðdrátt, en síðan ég fékk þá nýju hef ég gert margar tilraunir til að taka mynd af hegranum, en þegar myndavélin er höfð með i morgungönguna, þá sést enginn fugl. Þegar ég er myndavélarlaus, þá stillir hann sér upp í sefinu, reigir hálsinn og stendur grafkyrr.
Í morgun fórum við Tess snemma, tvær einar. Hegrinn myndi örugglega vera á árbakkanum að veiða sér í morgunmatinn. En það sást enginn fugl. Tess óð út í ána, og fiskur spratt uppúr vatninu fyrir framan hana. Hún var alveg forviða og reyndi að elta hann. Auðvitað gerðist það of hratt fyrir mig og mína myndavél! Ætli það sé ekki skynsamlegast fyrir mig að taka bara myndir af blómum.

24.6.08

Uppáhaldsfugl

Þetta er spæta, eða "great spotted woodpecker." Þetta er sjaldgæfur og styggur fugl, en hneturnar eru ómótstæðilegar og hann hefur gogginn til að ná þeim. Ég tók þessa mynd út um gluggann í morgun. Því miður flaug einn svona fugl á rúðu hjá okkur í síðustu viku, og dó. Þeir fljúga geysihratt, og hann hefur líklega blindast af sól. Það var mikið áfall.

20.6.08

Ég er svartþröstur

Fyrir þremur vikum var ég egg, en nú er ég orðin stór, og kann að fljúga. Ég á heima í garði þar sem eru ýmis þægindi. Góðir runnar til að fela sig undir, matur er borinn fram tvisvar á dag, og svo er hér ágætt fuglabað.

Ég er einkabarn, líklega hefur einhver gætt sér á systkynum mínum, svo mamma passar mig vel. Hún rekur alla fugla í burtu með látum, meira að segja pabba minn, og flýgur skrækjandi upp og ræðst á dúfurnar þegar þær koma inn til lendingar. Þær gætu nefnilega verið ránfuglar.



Baðið er hressandi.






Hér er ég með mömmu minni. Hún matar mig enn, en ég er að læra að borða sjálf. Uppáhaldsmaturinn okkar beggja eru epli.

15.6.08

Litaval


Það er eins og garðurinn viti hvaða litir passa best saman. Fyrst í vor var allt í gulu, svo tóku bláklukkurnar við, en nú er það hvítt og fjólublátt. Allt í stíl. Þetta er ekki verk garðyrkjusnillings, heldur bara óvart. Hér var plantað samansafni af afgöngum úr öðrum beðum, gjöfum frá nágrönnum og vinum og slatta af plöntum úr gróðrarstöðinni, að ógleymdum "foxgloves" - sem vaxa villtir hér um allt.

1.6.08

Sólskin á sunnudegi

Svona fallegt sóleyjahaf veldur því að við getum ekki hugsað okkur að slá.

Bóndarósin var upphaflega í garðinum hans Williams í Renfrew,
en við tókum hana með hingað. Tíu árum seinna blómstrar hún enn.

Valmúar og kornblóm.

27.5.08

27. maí, 1978.








Ég á þrjátíu ára stúdentsafmæli í dag. Þegar ég hugsa til baka, þá er eins og þetta hafi verið í fyrra lífi, eða einhver allt önnur Ella. Það hefur svo margt gerst og svo margt breyst. Útskriftardagurinn er bjartur og fallegur í minningunni. Við fórum heim í Stóragerði, skáluðum í kampavíni og borðuðum kransaköku, og ég fékk stúdentarósina frá pabba. Í vinstra horninu á myndinni er pínulítil Gagga.












23.5.08

Vorveður

Við gátum snætt utandyra á hádeginu í gær.
Garðurinn er orðinn sumarlegur.

Þetta er "nýji garðurinn" - þar sem stóra tréð var áður.
Ég hef lagt gríðarlega vinnu í þennan part, því hann blasir við götunni.


Nauðsynlegt viðhald.

19.5.08

Myndavélin

Það hvíla þau álög á nýju super zoom myndavélinni minni að ef ég plús vélin birtast, þá hverfa allir fuglar. Ef ég tek vélina með í ferðalag til að taka landslagsmyndir, þá fer að rigna. Í gær tók ég myndavélina með í morgungönguna í glaðasólskini, en sá ekkert markverðara til að mynda en hunda. Í morgun tók ég vélina ekki með í morgungönguna niður með ánni, og þar stóð geysimyndarlegur hegri á árbakkanum, önd synti um með ungahóp, og kingfisher, sem er glæsilegastur breskra fugla, flaug glitrandi blár og appelsínugulur upp með bakkanum og stillti sér upp á grein. Er þetta einleikið?
Meðfylgjandi mynd er ekki tekin af mér.

15.5.08

Þjófar og ræningjar

Einhverjir óprúttnir náungar hafa lifað hátt á Spáni á minn kostnað - eða réttara sagt á kostnað bankans sem gaf út kreditkortið mitt. Það var hringt í mig í gær og mér sagt að vafasamar úttektir hefðu átt sér stað, og þeir væru búnir að loka kortinu. Þetta voru samtals 521 pund sem verslað var fyrir, og svo var reynt að taka út 15o til viðbótar eftir að lokað var fyrir. Þetta er í annað sinn sem þetta gerist. Ég hef aðallega notað þetta kort á netinu, og hef sem betur fer vit á að hafa lágmarks þak á úttektum, 500 pund. Þrátt fyrir að ég hafi engu tapað persónulega, þá finnst mér andstyggilegt að vita af einhverjum gangsterum notandi mitt nafn og númer. Ekki veit ég hvað þeir keyptu, en það hefur eflaust verið einhver ósómi.

10.5.08

Morgunganga, 10. maí 2008






Í morgun fórum við Tess snemma í morgungönguna. Það var milt, sólarlaust og enginn á ferli. Trén eru að laufgast, allt er þakið hvítum blómum og fuglarnir sungu. Er þetta ekki toppurinn á tilverunni?





9.5.08

Ránfuglar




Við fórum til Aberfoyle á þriðjudaginn og þar eru ránfuglar í búri fyrir túristana til að taka myndir af. Þeir eru bundnir við staura. Mikið vorkenndi ég þeim. Þetta er fálki, held ég.

Örn.

Eagle Owl. Stærsta uglan í Evrópu.

Posted by Picasa

Þetta er nítján-daga gamall ugluungi sem þarna var til sýnis.

29.4.08

Fugl dagsins

Það var fastur liður í útvarpinu hér áður fyrr. Fugl dagsins. Fuglasöngur, eða skrækir, eftir því hverskyns fugl þetta var, og svo reyndi maður að giska rétt. Þessi fugl kallast grænfinka, og syngur ekkert sérstaklega fallega.
Posted by Picasa

14.4.08

Loksins kom vorið

Litla álfkonan mín er komin út og á stallinn sinn.

Fritillarian er sprungin út.

Nú er það garðvinnan á fullu. Allan daginn. Mikið að gera.

8.4.08

Halló!!!

Er einhver þarna? Samkvæmt teljaranum hefur ekki sála komið í heimsókn síðan á föstudag. Vonandi er teljarinn í ólagi.

4.4.08

Lúksus


Posted by Picasa
Við héldum uppá 11 ára (ELLEFU!) brúðkaupsafmæli okkar í gær með því að fá okkur hádegismat á fínasta hótelinu hér um slóðir, Mar Hall. Rosa flott.

Hér má sjá William nýklipptan í matsalnum.

28.3.08

Út um gluggann

Er búið að gefa fuglunum?

Íkorni á hvolfi

Gott í gogginn.


Það er alldeilis lúksus að geta setið inni í hlýjunni og tekið dýralífsmyndir út um gluggann.

25.3.08

Íkornatetur


Hér er mikið um íkorna og þeir eru duglegir við að rupla fuglafóðrinu, sérstaklega hnetum. Það er svo sem allt í lagi, þeim eru velkomnar hneturnar, ef þeir hefðu ekki þann leiða sið að naga fóðurstaukinn til óbóta. Þeir hafa svo sterka kjálka að þeir geta bitið sundur vírnet. En fallegir eru þeir, greyin.
Posted by Picasa